Nýr vefur fyrir Bíldudal
Bíldudalur hefur eignast nýjan vef, bildudalur.is. Hugmyndin er einföld: einn staður þar sem íbúar, brottfluttir og gestir sjá hvað er að gerast í þorpinu við Arnarfjörð.
Á vefnum er þetta að finna:
- Á döfinni: viðburðir í þorpinu og nágrenni, allt frá mörkuðum og námskeiðum til funda og skemmtana.
- Fréttir: það sem er að gerast á Bíldudal, í atvinnulífinu, menningunni og mannlífinu.
- Tilkynningataflan: smáauglýsingar, tapað og fundið, til sölu og aðrar tilkynningar. Hver sem er getur sent inn tilkynningu og hún birtist þegar hún hefur verið yfirfarin.
- Fyrirtæki og þjónusta: yfirlit yfir fyrirtæki, veitingar, gistingu og afþreyingu á svæðinu.
- Sagan: stiklað á stóru í sögu Bíldudals, frá landnámi til dagsins í dag.
- Golf: Golfklúbbur Bíldudals er með sinn eigin vef á golf.bildudalur.is.
Vefurinn er enn í mótun og efnið á eftir að aukast. Ertu með frétt, viðburð eða ábendingu um eitthvað sem vantar? Sendu línu á bildudalur@bildudalur.is.