Fara beint í efnið
Bíldudalur

Veður og samgöngur

Bíldudalur stendur við Arnarfjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hér er á einum stað það helsta sem þarf til að komast til og frá þorpinu: veðurspá, færð á vegum, flug, strætó og ferja. Áætlanir breytast eftir árstíma og veðri, svo athugaðu alltaf nýjustu upplýsingar hjá viðkomandi aðila áður en lagt er af stað.

Veður

Veðurspá fyrir Bíldudal – næsti sólarhringurHiti [°C]Úrkoma [mm/klst]   ↙ Vindur [m/s]
0°2°4°6°0504505606100714081309111011119128136145154163173182191204215225235Mán 30. nóv004014022033
Núna: Skúrir, 4 °C, SSV 5 m/s. Gögn: Veðurstofa Íslands. Spá gerð 29. nóvember kl. 00:00. Nánar á vedur.is

Færð og vegir

Færðarkort Vegagerðarinnar af Vestfjörðum
Færð á Vestfjörðum – lifandi kort frá Vegagerðinni. Tímasetning kortsins er neðst í vinstra horni þess. Smelltu á kortið til að opna gagnvirka kortið á umferdin.is. Skýringar á litum og táknum

Leiðin til Bíldudals liggur um fjallvegi – Hálfdán milli Bíldudals og Tálknafjarðar, Mikladal og Kleifaheiði í átt að Barðaströnd, og Dynjandisheiði norður til Ísafjarðar. Að vetri er gott að skoða færðina áður en lagt er af stað.

Flug

Bíldudalsflugvöllur er um 5 km suðaustan við þorpið. Norlandair flýgur áætlunarflug milli Reykjavíkur og Bíldudals sex daga vikunnar og flugið tekur um 35 mínútur.

Strætó – leið 66

Frá 1. september 2026 ekur leið 66 hjá Strætó milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar, Bíldudals og Bíldudalsflugvallar. Vagninn ekur í tengslum við áætlunarflug Norlandair, á virkum dögum og sunnudögum, og stoppar við Orkuna á Bíldudal. Ekki er ekið vegna aukafluga utan áætlunar og tímar geta breyst ef flugi seinkar vegna veðurs.

Ferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur siglir milli Stykkishólms og Brjánslækjar á Barðaströnd með viðkomu í Flatey. Ferjan tekur bíla og styttir leiðina til og frá Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega þegar færð er þung á vegum.

Rútur á sumrin

Yfir sumarið, frá júní til ágústloka, hefur leið 62 hjá Strætó gengið milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar um Brjánslæk, Flókalund, Dynjanda og Þingeyri. Áætlun hvers sumars er birt á straeto.is.

Vantar eitthvað hér eða er eitthvað úrelt? Sendu línu á bildudalur@bildudalur.is.