Fara beint í efnið
Bíldudalur

Áhugavert á Bíldudal og í nágrenni

Bíldudalur stendur við Arnarfjörð, einn fallegasta fjörð landsins. Hér er yfirlit yfir það sem gaman er að skoða í þorpinu sjálfu og í næsta nágrenni, hvort sem þú stoppar í klukkutíma eða nokkra daga.

Í þorpinu

Skrímslasetrið

Arnarfjörður er þekktur fyrir sögur af sæskrímslum og á Skrímslasetrinu eru þær sagðar. Hafðu augun á firðinum á leiðinni þangað.

Melódíur minninganna

Tónlistarsafn Jóns Kr. Ólafssonar, tileinkað sögu íslenskrar dægurtónlistar. Safnið er að Tjarnarbraut 5, sími 456 2186.

Gamla smiðjan

Ein elsta áþreifanlega heimildin um atvinnusögu Bíldudals. Pétur J. Thorsteinsson lét reisa smiðjuna um 1895, á mesta uppgangstíma þorpsins.

Golf á Litlueyrarvelli

Níu holu völlur Golfklúbbs Bíldudals, sem var stofnaður 1992. Félagsmenn byggðu sjálfir upp aðstöðuna og breyttu gömlu íbúðarhúsi í klúbbhús. Nánar á golf.bildudalur.is.

Á sjó

Frá Bíldudal er farið í sjóstangaveiði og siglingar um Arnarfjörð. Hnúfubakar hafa sést í firðinum yfir sumarið.

Símanúmer, vefsíður og fleiri aðila finnur þú undir Fyrirtæki og þjónusta.

Í nágrenninu

Laugin í Reykjarfirði

Útisundlaug rétt við þjóðveginn (veg 63) inn með firðinum, með útsýni yfir Arnarfjörð. Vatn rennur í hana allt árið og hún getur orðið dálítið heit. Aðstaða er til fataskipta, rétt fyrir ofan er lítil náttúruleg setlaug og aðgangur er ókeypis. Nánar á westfjords.is

Foss í Fossfirði og A-húsið

Í botni Fossfjarðar er bærinn Foss og samnefndur foss. Þar stendur líka A-húsið, gamalt og yfirgefið hús sem er orðið eitt vinsælasta myndefni svæðisins vegna lögunar sinnar. Nánar á westfjords.is

Selárdalur og Ketildalir

Út með firðinum frá Bíldudal liggja Ketildalir, röð stuttra dala milli þverhníptra fjalla (vegur 619). Yst er Selárdalur með listasafni og kirkju Samúels Jónssonar (1884–1969), „listamannsins með barnshjartað“, sem reisti hvort tveggja og fyllti af málverkum og styttum eftir að hann komst á ellilífeyri. Þaðan sést yfir fjörðinn til Kaldbaks, hæsta fjalls Vestfjarða. Nánar á westfjords.is

Suðurfirðir og Dynjandi

Inn af Arnarfirði ganga Suðurfirðirnir fjórir: Fossfjörður, Reykjarfjörður, Trostansfjörður og Geirþjófsfjörður, þar sem eru slóðir Gísla Súrssonar. Trostansfjörður er djúpur fjörður með bröttum, grónum hlíðum og þaðan liggur leiðin upp á Dynjandisheiði. Handan heiðar er fossinn Dynjandi, ein þekktasta perla fjarðarins, og á Hrafnseyri er fæðingarstaður og safn Jóns Sigurðssonar. Nánar á westfjords.is

Kannaðu færð áður en lagt er af stað, sérstaklega að vetri, á umferdin.is.

Tjaldsvæði

Á Bíldudal eru tvö tjaldsvæði, bæði með salernum, rafmagni og leikvelli:

  • Við Skrímslasetrið, í miðju þorpinu. Vesturbyggð rekur svæðið.
  • Á Völuvelli, á íþróttavellinum rétt við golfvöllinn.

Heimild

Byggt á upplýsingum Markaðsstofu Vestfjarða: Bíldudalur á westfjords.is.