Fjórðungsþing vill hraða göngum undir Mikladal og Hálfdán
Fjórðungsþing Vestfirðinga, sem haldið var á Patreksfirði 27. og 28. október 2026, samþykkti ályktun um jarðgöng á Vestfjörðum. Þingið fagnar því að göng undir Mikladal og Hálfdán, ásamt Álftafjarðargöngum, séu komin í forgang í samgönguáætlun.
Skorað er á ríkisstjórn og Alþingi að flýta undirbúningi og tryggja fjármögnun, þannig að forgangsröðun samgönguáætlunar 2026–2040 verði fylgt eftir með tímasettri og fjármagnaðri framkvæmdaáætlun. Lögð er áhersla á að framkvæmdir við bæði verkefnin hefjist ekki síðar en árið 2030.
Göngin undir Mikladal og Hálfdán eiga að bæta samgöngur milli Bíldudals, Tálknafjarðar og Patreksfjarðar. Í ályktuninni er minnt á hve miklu öruggar heilsárssamgöngur skipta fyrir búsetu, atvinnulíf og aðgengi að þjónustu.
Nánar á vef Vesturbyggðar: Ályktun um framkvæmdir við jarðgöng