Sóknarhópur Vestfjarða vill frumvarp um lagareldi á haustþingi
Stjórn Sóknarhóps Vestfjarða hvetur atvinnuvegaráðherra til að leggja fram frumvarp um lagareldi á haustþingi 2026, sem allra fyrst, og greiða götu þess. Í Sóknarhópnum eru 96 fyrirtæki víðs vegar á Vestfjörðum og ályktun stjórnarinnar var birt á vef Vestfjarðastofu 18. nóvember.
Í ályktuninni segir að lagareldi sé orðið ein af burðarstoðum atvinnulífs á Vestfjörðum og eigi þátt í viðsnúningi fjórðungsins síðustu ár. Regluverk greinarinnar þurfi að uppfæra og hún þurfi skýr og fyrirsjáanleg starfsskilyrði. Óvissa um framtíðina hafi dregið úr fjárfestingu og hægt á uppbyggingu.
Að sögn stjórnarinnar telja eldisfyrirtækin að skýr framtíðarsýn myndi skila nýrri fjárfestingu og vexti, meðal annars í landstöðvum þar sem alin eru stærri seiði. Því myndu fylgja fjölbreyttari störf og meiri verðmætasköpun á svæðinu.
Fiskeldi er ein stærsta atvinnugreinin á Bíldudal og við Arnarfjörð og málið snertir því þorpið beint.
Nánar á vef Vestfjarðastofu: Stjórn Sóknarhóps Vestfjarða vill sjá frumvarp um lagareldi á haustþingi.