Nýjar loftmyndir af Bíldudal komnar í kortasjá
Í sumar voru teknar nýjar loftmyndir í hárri upplausn af öllum þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum, þar á meðal Bíldudal. Myndirnar eru nú aðgengilegar í kortasjá sveitarfélagsins og á map.is.
Einnig voru myndaðir vinsælir ferðamannastaðir í nágrenninu, svo sem Dynjandi og Selárdalur í Arnarfirði.
Heimild og nánar: Bæjarins besta, Nýjar loftmyndir af þéttbýlisstöðum Vestfjarða komnar í kortasjá á bb.is.