Hafró leggur til 248 tonna rækjuafla í Arnarfirði
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að rækjuafli í Arnarfirði fari ekki yfir 248 tonn fiskveiðiárið 2026/2027. Stofninn í firðinum hefur haldist nokkuð stöðugur frá 2018, en mikið hefur verið af ýsu á svæðinu undanfarin ár.
Í Ísafjarðardjúpi er hins vegar lagt til að engar rækjuveiðar verði leyfðar.
Heimild og nánar: Bæjarins besta, Ráðgjöf vegna rækju í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi á bb.is.