Liðnir viðburðir
Hér eru viðburðir sem hafa farið fram á Bíldudal og í nágrenni. Það sem er fram undan er á forsíðunni undir „Á döfinni“.
- 26. nóvember 2026kl. 09:00–17:30
Menning og listir á Vestfjörðum – ráðstefna á Ísafirði
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið heldur ráðstefnu um menningu og skapandi greinar á Vestfjörðum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 26. nóvember kl. 9:00–17:30, í samstarfi við Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Edinborgarhúsið. Rætt verður um stöðu, styrkleika og tækifæri í menningarlífi fjórðungsins og aðgengi að listum og menningu óháð búsetu. Þar verður meðal annars úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Ráðstefnan er opin öllum meðan húsrúm leyfir og þátttaka kostar ekkert, en skrá þarf sig í síðasta lagi mánudaginn 23. nóvember. Þeir sem komast ekki vestur geta fylgst með í beinu streymi. Bílddælingar sem starfa að menningu, listum eða hátíðahaldi eru hvattir til að skrá sig og taka þátt. Skráning á ráðstefnuna · Dagskrá og nánari upplýsingar á westfjords.is
Edinborgarhúsið, Ísafirði
- 21. nóvember 2026kl. 16:00
Jólaljósin tendruð á Bíldudal
Kveikt verður á jólatrénu á Bíldudal við félagsheimilið Baldurshaga, strax að loknum jólamarkaði slysavarnadeildarinnar Gyðu. Boðið er upp á kakó og íbúar eru hvattir til að taka með sér eigin bolla. Jólaljósin verða líka tendruð á Tálknafirði laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00 á Lækjartorgi og á Patreksfirði fimmtudaginn 3. desember kl. 16:00 á Friðþjófstorgi, þar sem jólasýning í Skjaldborgarbíói tekur við kl. 17:00. Heimild: Bæjarins besta, bb.is.
Baldurshagi, Tjarnarbraut 4
- 18. nóvember 2026kl. 19:00
Ólseigir krakkar – að efla þolgæði og sjálfstraust barna
Fjarkennt námskeið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Leiðbeinandi er Ársæll Arnarson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verð 19.900 kr. Skráning og nánari upplýsingar á frmst.is.
Fjarkennt á netinu
- 18. nóvember 2026kl. 16:10
Kirkjuskóli
Kirkjuskóli í Gamla skóla. Allir velkomnir.
Gamli skóli
- 18. nóvember 2026kl. 19:30
Brúarkvöld í Birkimel – rannsókn á heimabyggð
Elva Björg Einarsdóttir, doktor í ferðamálafræði, kynnir rannsókn sína á Vesturbyggð: tengsl fólks og náttúru, veginn, gömlu alfaraleiðirnar og hvernig heimamenn og ferðamenn mætast.
Birkimelur, Barðaströnd
- 16. nóvember 2026kl. 18:00–20:00
Íslenska 1A – íslenskunámskeið
Íslenskunámskeið fyrir byrjendur hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Kennt á mánudögum kl. 18–20 og miðvikudögum kl. 17–19. Kennari er Birna Hannesdóttir. Verð 29.500 kr. og hægt er að kanna styrki hjá fræðslusjóðum og stéttarfélögum. Skráning á frmst.is.
Vatneyrarbúð, Patreksfirði
- 7. nóvember 2026kl. 14:00–17:00
Haustmarkaður á Tálknafirði
Fjöldi seljenda með sultur, handunna skartgripi, harðfisk, fisk og fiskibollur, ljósmyndir, hunang, prjónavörur, barnaföt, kjötvörur frá Brjánslæk, ilmkerti, gjafavörur, bakstur og jurtalitað einband. Frímarkaðurinn er í anddyrinu í umsjón Grænfánaverkefnis Tálknafjarðarskóla, þar sem hægt er að koma með það sem maður notar ekki lengur og fá annað í staðinn, allt ókeypis. Markaðsstelpurnar á Tálknafirði bjóða öll velkomin.
Íþróttahúsið á Tálknafirði
- 22. júní 2026
Jakob Birgis – uppistand á Skrímslasetrinu
Uppistandarinn Jakob Birgis kom við á Skrímslasetrinu á ferð sinni um landið sumarið 2026, með nýtt efni í bland við sígilda brandara.
Skrímslasetrið, Strandgötu 7
- 23. maí 2026kl. 21:00
Pöbbkviss á Skrímslasetrinu – Kvisslarinn kynnir
Kvisslarinn stóð fyrir pöbbkvissi á Skrímslasetrinu með vinningum fyrir þrjú efstu sætin og besta liðsnafnið. Aðgangur var 2.000 kr.
Skrímslasetrið, Strandgötu 7
- 15. maí 2026
Skrímslasetrið opnar fyrir sumarið
Skrímslasetrið opnaði á ný eftir vetrarlokun og tók á móti gestum í safninu og á kaffihúsinu fram á haust.
Skrímslasetrið, Strandgötu 7