Fara beint í efnið
Bíldudalur

Bíldudals grænar baunir

Bíldudals grænar baunir er bæjarhátíð Bílddælinga. Hún er haldin annað hvert ár og þá fyllist þorpið af heimafólki, brottfluttum Arnfirðingum og gestum sem koma til að syngja á Tungunni, hlusta á tónleika í görðunum og hittast.

Næsta hátíð verður 1.–4. júlí 2027. Dagskráin hefur ekki verið tilkynnt. Þessi síða verður uppfærð þegar meira liggur fyrir.

Bílddælingar á bjórnum

Hátíðinni fylgir sérmerktur hátíðarbjór, og á miðanum er ekki vörumerki heldur andlit. Allt frá fyrstu hátíðinni 2003 hefur eftirminnilegur Bílddælingur prýtt bjórinn hverju sinni, teiknaður með það í kringum sig sem einkenndi hann: Senjor við trönurnar, Siggi Ben á verkstæðinu, Grímsi með þann gula í fanginu, Valdi Ott innan um kvikmyndavélar og baunadós og Gutti við píanóið.

Bjórmiði: Senjor · 2003
Senjor · 2003
Bjórmiði: Siggi Ben · 2005
Siggi Ben · 2005
Bjórmiði: Júlli Páls · 2007
Júlli Páls · 2007
Bjórmiði: Stína Jóns · 2009
Stína Jóns · 2009
Bjórmiði: Grímsi · 2011
Grímsi · 2011
Bjórmiði: Lúlla · 2013
Lúlla · 2013
Bjórmiði: Jói · 2015
Jói · 2015
Bjórmiði: Valdi Ott · 2017
Valdi Ott · 2017
Bjórmiði: Hafliði · 2019
Hafliði · 2019
Bjórmiði: Öddi · 2023
Öddi · 2023
Bjórmiði: Gutti · 2025
Gutti · 2025

Öddi · 2023

Örn Gíslason, Öddi. Fæddist í Jónshúsi á Bíldudal 6. febrúar 1939, lést 15. september 2017. Öddi vann hin ýmsu störf um ævina, kom að uppbyggingu Mjólkárvirkjunar, vegaeftirliti hjá FÍB, fiskvinnslu og fl. Lengst af rak hann eigið vélaverkstæði og gerði nánast við alla hluti, allt frá hrærivélum til togara. Hann var einn af stofnendum Björgunarsveitarinnar Kóps, var virkur í félagsstörfum m.a. hjá leikfélaginu Baldri, þar sem margir minnast hans í hlutverkum Skugga Sveins eða Lenna í Mýs og menn. Öddi var ljúfmenni, fróður og mikill sögumaður, hans er minnst með söknuði og hlýju. Hönnun og myndskreyting: Magnús B. Óskarsson.

Miðarnir bera nafn og ártal, og brugghúsin hafa verið fleiri en eitt í gegnum árin. Aftan á miðanum um Stínu Jóns frá 2009 er stutt æviágrip. Kristín Jónsdóttir fæddist á Barmi á Skarðsströnd 1896, kom til Bíldudals átján ára til að sinna líknar- og hjúkrunarstörfum og vann við ræstingar í barnaskólanum fram til níræðisaldurs. Hún lést 1994 og er á miðanum sögð einstök kona, eljusöm, spaugsöm og glaðlynd. Valdi Ott á sérstaklega vel heima á bjór hátíðarinnar: hann var lengst af verkstjóri í Rækjuverksmiðjunni, síðar Matvælaiðjunni, þar sem baunirnar voru soðnar niður.

Hugmyndin og teiknararnir

Valdimar Gunnarsson átti hugmyndina að hátíðinni sjálfri og líka að útliti miðanna. Fyrstu teikninguna, af Senjor, gerði Hafliði Magnússon. Allar hinar eru eftir Magnús B. Óskarsson teiknara, sem teiknaði einnig merki hátíðarinnar.

Merki hátíðarinnar Bíldudals grænar baunir: tvær brosandi grænar baunir
Merki hátíðarinnar, eftir Magnús B. Óskarsson.

Árið 2023 var hætt að hafa bjórinn á flöskum og því breyttist útlit miðanna nokkuð. Á nýjustu baunadósinni, frá 2025, er Ástvaldur, Gutti, við píanóið.

Þeim sem voru á fyrstu flöskunum þótti sopinn svolítið góður, og því fór sá orðrómur á kreik að eingöngu „vínglaðir“ einstaklingar yrðu hafðir á miðunum. Svo er alls ekki. Miðarnir eru hugsaðir sem virðingarvottur og hlýhugur til fólks sem hefur verið eftirminnilegt og sett svip sinn á bæjarlífið á Bíldudal.

Áttu sögur eða myndir af fólkinu á miðunum? Sendu línu á bildudalur@bildudalur.is.

Hvað er um að vera?

Dagskráin breytist milli ára, en nokkrir liðir hafa fest sig í sessi. Þetta er byggt á dagskrá síðustu hátíða og er ekki loforð um 2027:

  • Setning á Tungunni: hátíðin er hringd inn á föstudagskvöldi með Tungusöng og varðeldi.
  • Í túninu heima: tónleikar í görðum og á pöllum víða um þorpið.
  • Hamagangur á Hóli: níu holu golfmót Golfklúbbs Bíldudals á Litlueyrarvelli, sem oftast opnar hátíðina.
  • Baunahlaupið: götuhlaup, 2,5 og 5 km, og Baunaspíruhlaup fyrir þau yngstu.
  • Kjötsúpa og laxaveisla: súpa í boði hátíðarnefndar og laxaveisla hjá Arnarlaxi.
  • Hátíðarsvæðið: leiktæki, andlitsmálning, markaðstjöld og kvöldtónleikar.
  • Saga og menning: söguganga um þorpið, eldsmiður í Gömlu smiðjunni, myndlistarsýningar, leiksýningar og opið hús hjá fyrirtækjum.
  • Fyrir krakkana: dorgveiðikeppni á höfninni, froðufjör og hoppukastalar.
  • Baunahappdrættið: dregið á sunnudeginum.

Sagan á bak við baunirnar

Nafnið kemur úr dós. Árið 1938 keypti Gísli Jónsson, vélaeftirlitsmaður og síðar alþingismaður, Bíldudalseignir og hóf mikla uppbyggingu í þorpinu: hafskipabryggju, fiskimjölsverksmiðju og rækju- og niðursuðuverksmiðju. Verksmiðjan var vígð með viðhöfn 4. september 1938 og Gísli leigði farþegaskipið Gullfoss til að flytja gesti vestur. Morgunblaðið kallaði þetta stóran viðburð í íslensku atvinnulífi.

Í verksmiðjunni var soðin niður rækja og síðar margt fleira, þar á meðal grænar baunir. Seinna komst hún í eigu Kaupfélags Arnfirðinga og fékk nafnið Matvælaiðjan hf. Dósirnar með áletruninni „Bíldudals grænar baunir“ rötuðu inn á heimili um allt land og nafnið varð landsþekkt. Heimamenn hafa haldið því fram að galdurinn hafi verið einfaldur: keypt var úrvalshráefni þótt það kostaði meira.

Gamla verksmiðjuhúsið stendur enn við Strandgötu. Þar er nú Skrímslasetrið.

Lagið

Árið 1983 gáfu Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla út plötuna Upp og niður undir nafninu Jolli & Kóla. Fyrsta lagið á henni heitir „Bíldudals grænar baunir“ og er eftir Valgeir. Með því urðu baunirnar ódauðlegar, líka hjá þeim sem aldrei höfðu opnað dós.

Hlustaðu á lagið: Bíldudals grænar baunir – Jolli & Kóla (1983)

Langar þig að æfa þig að spila lagið og syngja með? Texta og gítargrip finnur þú á Guitarparty.

Bókin

Bílddælingurinn Hafliði Magnússon gaf út gamanvísnabókina Bíldudals grænar baunir undir lok áttunda áratugarins. Hún seldist fljótt upp og var endurútgefin af Vestfirska forlaginu árið 1999.

Saga hátíðarinnar

  • 2003: fyrsta hátíðin, þá kölluð Arnfirðingahátíð. Hljómsveitin Facon frá Bíldudal kom saman í fyrsta sinn síðan á sjöunda áratugnum.
  • 2005: Arnfirðingafélagið í Reykjavík og félagasamtök á Bíldudal standa að hátíðinni, með það markmið að kynna menningarstarf Arnfirðinga.
  • 2019: söguskilti um Pétur J. Thorsteinsson og Ástríði Guðmundsdóttur afhjúpað á Tungunni á hátíðinni.
  • 2021, 2023 og 2025: hátíðin haldin um mánaðamótin júní–júlí. Hópur sjálfboðaliða stendur að henni og brottfluttir taka mikinn þátt með heimamönnum.
  • 2027: næsta hátíð, 1.–4. júlí.

Gisting

Þorpið er lítið og gisting fyllist fljótt þegar hátíðin nálgast. Bókaðu snemma.

  • Harbour Inn: gistiheimili í miðju þorpinu. Bóka á Booking.
  • Öll gisting á svæðinu: yfirlit á Booking yfir Bíldudal, Tálknafjörð og Patreksfjörð. Til Tálknafjarðar eru um 19 km og til Patreksfjarðar um 30 km.
  • Tjaldsvæði: sjá hér að neðan.

Tjaldsvæði

Tjaldsvæðin á Bíldudal eru tvö og Vesturbyggð rekur þau. Gamla tjaldsvæðið við Byltu er ekki lengur til; þar stendur nú nýr grunn- og leikskóli. Lýsingin á aðstöðu er frá hátíðinni 2025 og gæti breyst fyrir 2027:

  • Við Skrímslasetrið (Strandgötu 7): rafmagn, salerni og uppþvottaaðstaða. Næst hátíðarhöldunum, svo þar má búast við hávaða.
  • Á Völuvelli: við golfvöllinn rétt innan við þorpið. Tvö salerni og einn rafmagnsstaur. Rólegasta svæðið.

Ekki var hægt að panta pláss 2025, fyrstur kemur, fyrstur fær. Næturró er frá kl. 23 til 7. Nánari upplýsingar veitir Vesturbyggð í síma 450 2300.

Matur og þjónusta

Vegamót er veitingastaður og verslun þorpsins, við hliðina er Magazínið og bensíndælur, og á Skrímslasetrinu er kaffihús. Yfirlit yfir fyrirtæki og þjónustu er á forsíðunni.

Fylgstu með

Heimildir