Fyrirtæki og þjónusta á Bíldudal á einum stað
Á bildudalur.is er nú komin skrá yfir fyrirtæki og þjónustu á Bíldudal, með stuttri lýsingu, síma, netfangi og vefslóð þar sem það á við. Hægt er að sía skrána eftir flokkum.
- Matur og verslun: Vegamót og Magazínið.
- Gisting: Harbour Inn og yfirlit yfir gistingu á svæðinu.
- Afþreying: Beffa Tours og Golfklúbbur Bíldudals.
- Söfn og menning: Skrímslasetrið, Melódíur minninganna og Gamla smiðjan.
- Atvinnulíf: Arnarlax, Íslenska kalkþörungafélagið og Hafkalk.
Skráin er ekki tæmandi. Vantar þitt fyrirtæki, eða þarf að leiðrétta eitthvað? Sendu línu á bildudalur@bildudalur.is og við bætum úr því. Skráning er ókeypis.